Hugleiðsla með öllum líkamanum!
4 vikna námskeið, kennt á miðvikudögum kl 16.30, einu sinni í viku í 45-60 mín í senn.
Kennsla í samræmi við sóttvarnareglur þ.e.a.s á Zoom og/eða í húsakynnum Tveggja heima, Suðurhlíð 35.
Fyrir alla aldurshópa!
Hvað er Qigong?
Er hægt að hafa góð áhrif á líkamann, tilfinningar og hugsun með flæðandi og öguðum hreyfingum?
Hvað þarf að hafa í huga og hvað þarf ekki að hafa í huga þegar þú æfir Qigong?
Hvaða lykilatriði eru mikilvæg til að hreyfingin skili þeim árangri sem þú ætlast til?
Hvernig spila náttúruöflin í þér og umhverfinu og hreyfingarnar saman?
Er hægt að temja hugsun með flæðandi hreyfingum?
Taugakerfi, orkubrautir, líffærin, heilinn, blóðið og beinin-allt tengist og vinnur saman.
Viltu skilja til að tileinka þér- þá er þetta námskeið fyrir þig.
Fyrsta námskeið er kennt 13 janúar til 3 febrúar.
Annað námskeið er kennt 10 febrúar til 3 mars.
þriðja námskeið er kennt 10 mars til 31 mars.
fjórða námskeið er kennt 7 april til 28 apríl.
fimmta námskeið er kennt 5 maí til 26 maí.
Verð 21.500kr
Opið í alla tíma í stundaskrá á meðan námskeiði stendur ( nema þeir sem eru lokaðir)
Skráning á námskeið: 2heimar@2heimar.is